top of page

Small studio. Big bite.

MAKÓ

Hugmyndir, framleiðsla og efni undir einu þaki.

Hver við erum og hvað við gerum

Efni sem hreyfir vörumerki áfram

Teymið okkar

Fólkið á bakvið Makó

Á bakvið Makó Creative er þétt og metnaðarfullt teymi sem vinnur náið saman að því að skapa vandað markaðsefni fyrir fyrirtæki og vörumerki. Við trúum á stuttar boðleiðir, sterka samvinnu og persónuleg samskipti í hverju verkefni.

Makó Creative er öflugt framleiðsluteymi sem sérhæfir sig í markaðsefni fyrir fyrirtæki og vörumerki. Við vinnum náið með viðskiptavinum að hugmyndavinnu, framleiðslu og efni sem þjónar skýru markmiði.

Styrkleikinn okkar liggur í stuttum boðleiðum, sveigjanleika og vandaðri framkvæmd. Við trúum því að gott efni eigi ekki bara að líta vel út, heldur líka að skila raunverulegum áhrifum fyrir vörumerkið.

Efni sem stoppar skrollið

Við framleiðum myndbandsefni fyrir TikTok, Instagram og Facebook — hannað til að grípa athygli á fyrstu sekúndunni.

Fyrirtæki sem treystu okkur

Frá upphafi hefur samstarfið við Makó einkennst af fagmennsku, hraða og framúrskarandi gæðum. Þau hafa einstakt auga fyrir smáatriðum, faglega nálgun á verkefnin og mikla hæfni í samskiptum. Viðskiptin hafa farið vaxandi með tímanum — ég gef þeim mín allra bestu meðmæli.

Sölu- og Markaðsstjóri - Kjörís

Elías Þór Þorvarðarson

​

Þegar við hófum samstarf við Makó small loksins allt saman hjá okkur. Hugmyndirnar sem við höfðum séð fyrir okkur urðu að veruleika, og jafnvel betri en við þorðum að vona. Makó hafa einstakt auga fyrir góðu efni, nær því besta fram í fólki og kemur alltaf með húmor og léttleika inn í verkefnin án þess að missa fókus á gæðin. 

Ritstjóri Hérer.is og samfélagsmiðlari - Smáralind

Helga Kristjánsdóttir

Það er gaman að vinna með Makó Creative. Skapandi fagfólk sem fer frumlegar og skemmtilegar leiðir í vinnu sinni. Allt á tíma og afurðir eru 100% flottar og faglegar. Hlakka alltaf til næsta verkefnis með þeim.

Verkefnastjóri fræðslu og kynninga- Sorpa

Freyr Eyjólfsson

Makó creative myndbandsgerð

Myndbandsgerð

Við sjáum um allt frá hugmyndavinnu og handriti yfir í tökur og frágang. Hvort sem um er að ræða auglýsingar, kynningarmyndbönd eða efni á samfélagsmiðla — við sköpum myndbönd sem ná til áhorfenda og skila árangri.

Makó creative eftirvinnsla

Eftirvinnsla

Klipping, hljóðvinna og grafík sem lyfta verkefninu á næsta stig. Við vinnum náið með þér til að tryggja að lokaniðurstaðan endurspegli sýn þína og standist ströngustu kröfur.

Makó creative litaleiðrétting

Litaleiðrétting

Við mótum liti, tón og áferð þannig að myndefnið styðji við söguna, stemninguna og heildarsvip verkefnisins. Litirnir hjálpa til við að skapa tilfinninguna sem á að sitja eftir.

Þjónustan okkar

Makó creative ljósmyndun

Ljósmyndun

Við myndum vörur, fólk og augnablik með skýran tilgang. Myndirnar eiga að styðja við vörumerkið, fanga rétta stemningu og hjálpa fyrirtækinu að segja sína sögu.

RÆÐUM VERKEFNIÐ ÞITT

bottom of page